Skýr stefna og forgangsröðun
Bætt skilvirkni og framkvæmd
Sterkari vörur og sjálfbær rekstur til framtíðar
Gréta María Grétarsdóttir er reynslumikill stjórnandi með bakgrunn í verkfræði, fjármálum og rekstri, og hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku atvinnulífi.
Hún hefur starfað sem forstjóri hjá Arctic Adventures og Heimkaupum og komið að uppbyggingu og umbreytingu m.a. sem fjármálastjóri Festi og framkvæmdastjóri Krónunnar og Prís. Gréta María starfaði einnig í yfir 10 ár í fjármálageiranum bæði hjá Sparisjóðabankanum og Arion Banka.
Með víðtæka reynslu af stefnumótun, rekstri og uppbyggingu fyrirtækja hefur hún leitt breytingar, aukið skilvirkni og byggt upp sterk teymi og vörur í samkeppnisdrifnu umhverfi.
Gréta María situr einnig í stjórnum og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjárfestingum, innviðum og fyrirtækjaþróun.
gretamaria@svartamamban.com
Heitið Svarta mamban sækir innblástur til Kobe Bryant, sem var þekktur undir viðurnefninu Black Mamba. Hann mótaði hugtakið Mamba Mentality – hugarfar sem byggir á óbilandi vinnusemi, stöðugri leit að framförum og skýrum fókus á árangur.
Mamba Mentality snýst um að mæta undirbúin, vinna markvisst að framförum á hverjum degi og taka ábyrgð á framkvæmd. Það er hugarfar sem setur háar kröfur, bæði til sjálfs sín og annarra, og leggur áherslu á að ná raunverulegum árangri – ekki aðeins að setja sér markmið.
Þessi nálgun endurspeglast í Svörtu mömbunni. Að baki fyrirtækinu er ekki aðeins reynsla úr atvinnulífinu, heldur einnig úr íþróttum – þar sem agi, liðsheild og stöðug þróun skipta sköpum. Gréta María hefur bæði spilað og þjálfað körfubolta, þar sem sama hugarfar hefur verið leiðarljós.
Nafnið stendur því fyrir meira en tákn – það endurspeglar vinnubrögð. Skýrleika, aga og þá trú að árangur byggist á stöðugri vinnu, skynsamlegri forgangsröðun og vandaðri framkvæmd.
Svarta mamban ehf.
kt. 580325-1060
Haukdælabraut 68
113 Reykjavík